Staðsetning

Nýibær er á Hofsósi við Skagafjörð sem er um það bil 326 km frá Reykjavík, sé farin þjóðvegur 1. Sé ekið um Þverárfjall styttist leiðin um 15 km. Frá Akureyri eru um 134 km á Hofsós.

Nákvæmt kort af staðsetninguNákvæmt kort af staðsetningu

Nýibær stendur í útjaðri byggðakjarnans á Hofsósi. Stutt er í Vesturfarasetrið og kjörið er að líta á safnið um Vesturferðirnar og enda svo í kaffi og með því á veitingastaðnum Sóltúni. Auk þess er kaupfélag í bænum, banki, bensínsjálfsali og grillsjoppa með lítilli video-leigu.

Nágrennið býður upp á fjölmarga möguleika til útiveru. Má þar nefna hestaleigu, rafting, golf, sjóstangaveiði, eyjaferðir, sundlaugar, veiði og margt fleira. Auk þess er stutt til annarra áfangastaða, t.d. Hóla í Hjaltadals og Sauðárkróks og kjörið að skreppa í bíltúra í nálæg sveitarfélög. Á vefnum www.northwest.is er að finna tengla á flest það sem í boði er á Hofsós og þar í kring.