Saga
Frá 1934 bjuggu í Nýjabæ þau Jóhanna Jónasdóttir og Guðni Þórarinsson. Fyrir þann tíma stóð húsið neðar í þorpinu og hét þá Vilmundarbær. Jóhanna og Guðni byggðu nýjan grunn og fluttu húsið þangað sem það stendur nú. Talið er að upphaflega húsið í Nýjabæ sé reist árið 1911 og var það þá án forstofunnar sem Jóhanna og Guðni létu byggja við síðar. Jóhanna og Guðni bjuggu í Nýjabæ til ársins 1965 en húsið var mikið endurnýjað árið 1978 án þess að nokkur ábúandi væri þar. Árin 1997 til 2000 var allt húsið endurnýjað og gert íbúðarhæft og þótt fátt minni á gömlu bygginguna er góður andi í húsinu og svefnsamt um nætur.

