Aðstaða

Nýibær er búinn öllum helstu nútímaþægindum og ætti ekkert að skorta á að gera dvöl þína sem ánægjulegasta. Hér er talið upp það helsta.

Eldhús

Í eldhúsi eru tvær rafmagnshellur, bakaraofn, örbylgjuofn, ísskápur með frystihólfi, pottar og pönnur. Þar er einnig kaffivél, hraðsuðuketil og öll áhöld til matargerðar. Stell er í Nýjabæ fyrir um 10 manns. Í eldhúsi er einnig lítil þvottavél. Nauðsynlegt er að taka með sér viskustykki og borðaklúta.

Stofa

Í stofu er rúmgóður hornsófi, útvarp með geislaspilara, sjónvarp og DVD spilari.

Stofan í Nýjabæ

Baðherbergi

Í baðherbergi er sturtuklefi, klósett og handlaug. Handklæði fylgja ekki Nýjabæ.

Svefnaðstaða

Í kjallara eru tvö svefnherbergi; eitt hjónaherbergi með aðskiljanlegum rúmum og annað herbergi með kojum. Þá eru tvær aukadýnur og ferðaungbarnarúm á staðnum. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns en nauðsynlegt er að taka með sér sængurfatnað.

Glæsilegt hjónaherbergi

Pottur

Lúxus-nuddpottur er í Nýjabæ. Hann er búinn fjölmörgum nuddstútum og innbyggð útvarpi með geislaspilara. Potturinn er búinn vatnssíu svo ekki er nauðsynlegt að fylla hann né tæma, heldur sér vatnssían um hreinsun vatnsins. Tröppur eru upp í pottinn. Úr pottinum er fyrirtaks útsýni yfir sólarlagið við Þórðarhöfða og Drangey.

Heiti potturinn

Pallur

Pallur er sunnan og austan við húsið og hellulögð stétt vestan og sunnan. Garðhúsgögn og gasgrill eru til staðar, auk grilláhalda.

Ævintýrakastali

Sannkallaður ævintýrakastali er á lóð Nýjabæjar fyrir yngri gesti.

Ævintýrakastali fyrir krakkana